Rannsóknarverkfæri TikTok

Fara í kafla


Hvað eru rannsóknarverkfæri TikTok?Hvernig við verndum gögnin þínHvernig hægt er að sækja um rannsóknarverkfæri




Hvað eru rannsóknarverkfæri TikTok?


Rannsóknarverkfærin okkar eru til þess gerð að styðja við rannsóknir á ýmsum sviðum, til að mynda rannsóknir á villandi upplýsingum, upplýsingafölsun, öfgastefnum, stefnum í samfélagsmálum og samfélagsuppbyggingu.Gjaldgengir rannsóknaraðilar á vegum góðgerðarsamtaka geta sótt um aðgang að gögnum um opinbera TikTok-reikninga og efni, þar á meðal:
Reikninga:
༚ Æviágrip
༚ Skráningarlönd (til dæmis svæðiskóða eins og IE)
༚ Lækuð, fest og endurbirt vídeó
༚ Nöfn, notendanöfn og heildarfjölda reikninga á listunum fylgir og fylgjendur
༚ Prófílmyndir
Efni:
༚ Skjátexta
༚ Athugasemdir og hvenær þær voru birtar
༚ Hvenær efni var birt
༚ Heildarfjölda athugasemda, læka, svara og deilinga sem færsla fær
༚ Lengd vídeós

Þú getur fengið meiri upplýsingar um gjaldgengi í tólin í rannsóknarverkfæri á vefsvæðinu TikTok fyrir þróunaraðila.




Hvernig við verndum gögnin þín


Við gerum ýmsar varúðarráðstafanir til að vernda gögnin þín á TikTok. Í því felst til dæmis að veita ákveðnum rannsóknaraðilum aðgang að gögnum í sýndarumhverfi sem er undir ströngu öryggiseftirliti.




Hvernig hægt er að sækja um aðgang að rannsóknarverkfærunum


Til að fá aðgang að rannsóknarverkfærunum þurfa rannsóknaraðilar að sækja um, fá umsóknina sína samþykkta og fylgja viðmiðunarreglum okkar fyrir samfélagið, persónuverndarstefnu okkar og þjónustuskilmálum rannsóknarverkfæra TikTok.

Var þetta gagnlegt?